Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir fyrir jólin 2021.
Þeir sem geta ekki sótt um á netinu geta hringt í síma 843-0272 og fengið tíma til að koma og fá aðstoð
til að sækja um.
Minnt er á að umsókn verður ekki tekin gild nema að búsetuvottorð og staðgreiðsluskrá með tekjum fyrir janúar til og með október 2021 fylgi umsókn. Umsækjendur þurfa að eiga lögheimili í Hafnarfirði.
Velunnurum nefndarinnar er bent á reikning nefndarinnar
- Reikningsnúmer í Íslandsbanka. 544-04-760686
- Reikngsnúmer í Landsbanka. 0140-15-381231
- Kennitala Mæðrastyrksnefndar er 460577-0399