Ekki þarf að skila inn Búsetuvottorði
Þar sem þjónustuverið hjá Hafnarfjarðabæ má ekki lengur senda okkur vottorðið
og það kostar 2750 kr að fá vottorð hjá Þjóðskrá
var tekin ákvörðun um að sleppa okkar skjólstæðingum við þann kostnað.
Nefndin styrkir efnaminni fjölskyldur í Hafnarfirði með inneignarkortum í matvöruverslanir í bænum og við viljum gjarnan gleðja börn og unglinga sem þurfa á því að halda með jólagjöfum.
Hægt er að leggja inn á reikning nefndarinnar, kaupa inneignarkort eða gefa jólagjafir. Allur stuðningur er vel þeginn. Velunnurum nefndarinnar er bent á reikning nefndarinnar. Nánar >